S�?�?�?­�?�?�?°an er..
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733849 dögum
03.01.2008 21:10:19 / Erna

ferskleikinn í fyrirrúmi

Þar sem blog.central er hreinlega ekki að gera sig þá höfum við stöllur ákveðið að hverfa yfir á 123.is

Þið kæru landsmenn sem álpist enn inná þessa síðu megið vinsamlegast hitta okkur hér: www.123.is/dufus :) en þetta er ný og endurbætt síða sem við munum fylla af skemmtun eins og okkur einum er lagið.

Takk fyrir samfylgdina hér og við sjáumst hress á og kát á 123.is !

www.123.is/dufus

.dufus.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 18:51:41 / Kata

Jólajólajól!!!

Jæja nú eru jólin og Kata litla bara í mögnuðu jólaskapi:D:D

Héðan af Akureyri er bara allt gott að frétta og við skötuhjúin bara mjög ánægð í nýju íbúðinni.... hvað má maður segja nýju lengi???
Strákarnir hans Villa eru líka mjög duglegir að koma í heimsókn annað hvort droppa inn eða gista:)
Hjónaballið var á stf í gær og ég fék smá heimþrá þá en svona núna þegar ég les á msnin hjá krökkunum að allir séu að deyja úr þynnku er ég bara svolítið sáttari:P
Mamma er líka öll að koma til en hún eins og margir vita fékk blóðtappa í heilan fyrir c.a 1 og hálfum-2 mán, hún er farin að vera mjög dugleg að labba en bara með stuðningi þó annað hvort hjúkku eða göngugrind en ég er bara ánægð hvað þetta virðist ætla að ganga mikið til baka en hún ruglar samt svolítið mikið en það fylgir bara svona veikindum.
Veit nú ekki hvað ég á að skrifa meira svo ég segi þetta bara gott í bili:)

Gleðilega hátíð allir saman og vona að ég hitti sem flesta hressa og káta á nýja árinu:*:*

p.s er að spá í að gera áramótaheit að halda þessari síðu lifandi:D:D 

Jóla og nýjárskveðja

-Kata-


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 10:56:13 / Bryndís

Jólin bara komin :/

jæja þa ætla ég loksins að segja eikkvað á þessari síðu og það hefur ekki skeð í langan tíma :/ en allavega þá er margt buin að ske hja mér síðan skólinn byrjaði t.d eins og flestir vita þa hættum ég og arnór saman og svo byrjaði ég með öðrum strák en við erum lika hætt saman þannig það eru ekki allir á dufus lengur á föstu :) svo er ég bara í "jólafríi" er samt buin að vinna á hár og heylsu í  13 til 15 tima á dag alla vikuna :( en nuna er ég i fríi til 27 en er sammt ekkert komin í jólaskap 8| en jamm ég er lika að pæla í að fara austur 27 og kíkja kannski á hjónaballið en ég ætla að fara í ljós nuna :)  á aðfangadag :D þannig gleðileg jól :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 10:35:08 / Erna

Allir krakkarnir..

Allir krakkarnir horfðu á örbylgjuofninn nema Binni...
hann var þar inni...

Allir krakkarnir horfðu á kirkjuna brenna nema Hermann...
það var verið að ferm'ann...

Allir strákarnir náðu sér í stelpu nema Tommi...
...hann var hommi...

Allir krakkarnir voru með gel í hárinu nema Hrund...
...hún var með b****...

Allir strákarnir sváfu vel í tjaldinu fyrir utan Skúla...
...hann var notaður sem súla...

Allir strákarnir voru með á körfuboltamyndinni nema Bergur...
...hann var dvergur...

Allir krakkarnir komu uppúr sundlauginni nema Þráinn...
...hann var dáinn...

Allar stelpurnar vorum með brjóst nema Lena...
...hún var með spena...

Allar stelpurnar fóru á klósettið nema Sigga...
...hún lét vaða á bringuna á Bigga...

Allir krakkarnir komu með Svala í skólann nema Þór...
...hann kom með bjór...

Allir krakkarnir léku sér saman í körfubolta nema Gvendur...
...hann hafði engar hendur...

Allir krakkarnir skemmtu sér í læknisleiknum nema Vera...
...hún var sú sem var verið að skera...

Allir voru viðstaddir við fæðinguna nema Víðir...
...hann var með hríðir...

Allir krakkarnir fóru uppúr sjónum þegar hákarlinn kom nema Linda blinda...
...hún var ennþá að synda...

Allir krakkarnir fóru að gráta við jarðarför kennarans nema Mæja...
...hún fór að hlæja...

Allar stelpurnar notuðu víbrador nema Eir...
...hún notaði leir...

Allir krakkarnir eru í góðu skapi nema Björg...
...hún er alltaf svo örg...

Allir krakkarnir voru með hár nema Halla...
...hún var með skalla...

Allir strákarnir áttu kærustur nema Stjáni...
...hann fékk þær í láni...

Allir strákarnir gerðu stelpurnar óléttar nema Sillu...
...hún notaði pillu...

Allir krakkarnir voru hreinir nema Dóra...
...hún var h***...

Allir krakkarnir voru að syngja nema Fríða...
...hún var að r***...

Allir krakkarnir voru að leika sér með ostaskerann fyrir utan Eið...
...hann kom út sneið fyrir sneið...

Allir krakkarnir voru í lúdó nema Ingó...
...hann var í bingó...

Allir krakkarnir fóru að synda nema gamla...
...hún kunni bara að svamla...

Allir krakkarnir höfðu tippi fyrir utan Öllu...
...hún var með P*****...

Allir strákarnir voru að dansa við stelpurnar nema Ágúst....
.....Hann var að dansa við strákúst....

Allir krakkarnir horfðu á innstunguna nema Frosti....
....Hann var í losti...

Allir krakkarni fengu vindinn í bakið nema Hlíf....
...Hún fékk hníf...

HAHAHAHAHAHAHAHAHA þetta er OF fyndið!!

-Erna

p.s. ég sagðist ætla að koma með e-ð fyndið næst ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 17:57:26 / Erna

Fréttastofan Hamragerði

Mér leiðist að koma inná þessa síðu og sjá mynd af mér þannig að loksins ætla ég að drulla mér í það að yfirblogga síðasta blogg.

Það er mjööög langt síðan ég páraði e-ð á þessa síðu síðast, tja eða bara síðan e-r gerði það en hún Katrín mín má nú eiga það að hún er ansi dugleg. Já eða hún var það allavega.

Nýjustu fréttir eru hinsvegar svo hljóðandi:

Kata er flutt inn með kallinum í voða krúttlega og kósý íbúð. Sófinn er líka meget þægilegur. Þau fengu sér svo kanínur en nöfn á þeim fylgja ekki með fréttinni. Hún á líka mjög fallegt sturtuhengi og bláa mottu alveg eins og við Lára. Hermikráka.

Ég er komin með stórt rúm, á engin gæludýr þó en bíllinn minn er kominn í lag. Steinar er líka duglegur að heimsækja mig um helgar, ætli ég megi ekki flokka hann undir gæludýr? Skólinn er brjálaður núna og ég fer ekki í jólafrí fyrr en 20. desember en þá mun ég leggja land undir fót og fara austur á bóginn.

Bryndís .. hvar er hún? Það er of langt síðan ég heyrði í henni síðast.

Nú ættu allir að vera sáttir, eða hvað?

Kannski kem ég með ofur fyndið blogg næst og e-ð súper skemmtilegt. Það kemur allt saman í ljós. Þið verðið bara að vera dugleg að kíkja við og já kjósið í nýrri skoðanakönnun!

-Ernie


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 13:56:22 / Kata

Ammó:*

Jæja í dag er merkisdagur en fyrir nkl 19 árum fæddist Erna mín:*


Ég og Erna höfum þekkst í allmörg ár eða frá því við vorum í grunnskóla, ég og Erna fórum samt ekki að vera svona miklar vinkonur eins og við erum í dag fyrr en í fyrra sumar ef mig minnir rétt:*
En í dag líður ekki sá dagur að við heyrum í hvor annari, og furðulegt en satt höfum við altaf nóg að tala um:D
Og það er fátt lítið sem við stöllur höfum ekki brallað saman, og má þá til gamans geta roadtripið okkar fræga, brynjuís rúntarnir og svo auðvitað Kjarni=)
En af þessu held ég að skíðaferðin okkar hafi samt staðið uppúr og henni verður seint gleymt:D:D

En Elsku Erna mín til hamingju með Afmælið og vonandi áttu eftir að njóta dagsins:*

Mundu að mér þykir alveg ótrúlega vænt um þig:*:*
´
Afmæliskveðja

-Kata:*


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 18:26:06 / Kata

jæja....

Bloggið og slúðrið sem við lofuðum í seinasta bloggi kemur ekki núna vegna þess að ég er bara hérna ein því Erna er fyrir Austan=) og blessunin á afmæli á morgun!!!, svona svo þið gleymið því ekki:):)

Erna pældu samt í því að það er ár síðan við fórum á Kósý:)Og margt hefur gert á þessu ári!

Smá fréttir af mér hérna frá Akureyri, þaðan sem ég mun búa núna í lengri tíma allavegana, því ég og hann Villi minn vorum að kaupa okkur íbúð:D
Hún er uppí þorpi, í Keilusíðu voðalega sæt og kósý 2 herbergja íbúð;)

Og ég veit að mörgum finst þetta kanski fullt snemmt allavegana henni móður minni, EN það er ekki hægt að bakka núna því við erum búin að skrifa undir og fáum afhent á miðvikudagin:) 
Svo þeir sem ætluðu sér geta alveg sleppt því að hneykslast á þessu í kommentum heldur sagt bara til hamingju;)

Erna ég sakna þín!!!!

En annars er ekkert að frétta, ég er bara að blogga hérna í smá pásu frá tiltekt og niðurpökkun.... Eins og það er nú gaman:$

En nóg í bili...!

ALLIR AÐ MUNA EFTIR ERNU Á MORGUN!!!!!!

Kv. frá AkCity

Katan;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 21:17:18 / Kata

LengstaBloggÍSöguDufus-.tk!!!

Bjarni bara fyrir þig.....!

Blogg:)

p.s Við Erna förum að henda inn góðri færslu frá AkCity ásamt slúúúðri og nýju mánaðarins!


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 22:51:56 / Kata

gítaristinn Erna og íþróttaálfurinn Kata

Við erum aftur komnar saman eftir langa dvöl á sitthvorum landshlutanum. hressar og kátar að vanda enda ekki annað hægt eins og Sigurður segir báðar svo miklar gleðikonur:)

Brandari dagsins: Arnór að vinna hjá Securitas!!!!!

Það helsta í fréttum er að okkur gengur báðum æðisgengið vel. Erna er byrjuð á fullu í skólanum, sem er ekkert nema eintóm hamingja og skemmtun. Og Kata er byrjuð í ræktinni, að læra spænsku og gengur bara prýðisvel. Semsagt, ekkert nema gott að frétta. En nóg af þvælu.

Veðrið er búið að vera yndislegt, soldill gustur og frostbit á morgnanna en annars skánar það með deginum.

Greyin Villi og Steinar eru ennþá fastir og samkvæmt nýjustu fréttum ekkert að fara að losna. Þess má geta að þeir hittust um daginn og var samtal þeirra svo hljóðandi:
Steinar; ert þú Villi?
þögn
Villi; já, Steinar?
þögn
Steinar; já.
En þeir skildu hvorn annan og litu á hvorn annan með mikilli mæðu. Erum við virkilega svo slæmar ?

Þrátt fyrir mikla fjarlægð og fáa hittinga í sumar skiljum við stöllur hvor aðra enn mætavel. En þetta samtal átti sér einnig stað á sama tíma:
Kata; Ég fór á Greifan um daginn og fékk mér þarna dksjfpjgriorg
Erna; ha?
Kata; já þarna æsdfjsdpfj
Erna; jaaá kólesterólsprengjuna?
Kata; já akkurat hana.
Enginn annar skildi hvernig Erna skildi um hvað Kata var að tala, en við skiljum samt ekki hvernig aðrir skildu það ekki.

En kíkið á slúðrið og fylgist með síðunni því mikið annað spennandi mun bráðlega koma inn á hana, eins og t.d. abb babb babb, bannað að segja því það verður SURPRISE!!!!;)

Við kveðjum ykkur að sinni og biðjum ykkur að fara varlega í umferðinni jafnt sem öðrum gerðum og ganga hægt um gleðinnar dyr um þessa helgi jafnt sem aðrar.

Auf Wiedersehen
Ykkar einlægu
Ernie & Katie
Gleðikonur


» 16 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 12:21:35 / Bryndís

ég er lika komin heim

jæja ég skrapp loksins heim um helgina og komst LOKSINS í litun og klippingu og plokkun og litun :D það var löngu kominn timi til moli hundurinn minn er buin að sakna min geggjað mikið það er alveg greinilegt og sandra kom með mer norður þannig við fórum bara eikvað í gær og hittum kristrunu og fengum okkur sma bjór og svona en annas er bara litið að fretta af mer er bara buin að vera í skólanum og á stöddanum og er ekkert buin að komast á netið í mánuð en ég ætla bara að hafa þetta stutt nuna :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 14:28:29 / Erna

-

Ég er komin heim.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 19:46:56 / Kata

hmm... SÓL;)

Jæja þetta blogg verður skemmtilegra en það seinasta sem ég setti hérna inn:) hefði heldur ekkert verið hægt að gera það bitrara:Þ

En í dag var sól...! ELSKA sól, maður verður svo ánægður í sól og allt verður MIKLU fallegra(það hefur pottó EKKI verið sól þegar ég bloggaði seinast)

En í dag líður mér vel, þetta er eikkað svo góður dagur:)
Díana fer að koma heim frá Spáni og það styttist óðum í Ernu mína heim frá Rhodos=)

En í dag er laugardagur og mánuður síðan ég drakk seinast:):)
JÁBB þið heyrðum rétt heill mánuður síðan ég fékk mér seinast bjór, held barasta að það hafi aldrei liðið svona langur tími hjá mér og ég er bara stollt af sjálfri mér:)
Ég fór í golf í gær, og ekki bílinn heldur golf með kylfu og öllu því dóti. Villa fanst ég standa mig vel þar sem hann slasaðist ekki og ekki ég heldur;) EN það þarf samt að setja nýtt gras því ég eyðilaggði svoldið mikið af því sem var fyrir, var að slá soldið aðeins pínkulítið of fast og ég sló altaf ofaní jörðina svo ég sló grasið af en ekki í kúluna:D það var samt gaman:)

Mig langar suður og knúsa Guðjón minn...!!

MagnúsPáll!!! hvar ertu??:D:D

En ætla að fara að gera mér e-ð að éta heyri í ykkur:*

Bleller
-Kata

p.s ég ætla svo að fá mér Brynjuís í eftirrétt fyrir ykkur sem langar að vita það;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 19:37:09 / Kata

Mig langar..... en það er ekki hægt!!!!

Mig langar MIKIÐ um þessar mundir

Mig langar t.d aftur í gamla góða tíma þar sem við þurftum ekki að hugsa neitt, tókum lífinu með ró og það var bara einn dagur í einu, eina sem maður þurfti að pæla í voru fötin sem maður gekk í og hugsanlega einn og einn strákur þar inná milli:) og svo auðvitað hvort við myndum fá klessukrem köku hjá Lindu í Dönsku;)

Mig langar aftur í Roadtripið okkar Ernu það var svo gaman:)

Mig langar aftur í Jólin þar sem við hittumst öll eftir matinn,bárum saman pakkana og tókum rölt!

Mig langar aftur í Boggu og Magga tímana, sakna þeirra mest!!!:cry:

Mig langar að fá mömmu mína aftur áður en hún veiktist og mig langar að hitta ömmu mína einu sinni enn!!:cry:

Mig langar svo mikið og ég sakna svo mikils!!!

Mig langar að fá aftur tímana þar sem ég bjó hjá Betu, rugla í Hákoni, kúra&spjalla við Rut  og rífast við Hjört um stærðfræði!!

Mig langar að verða stóra systir systkyna minna og standa mig í því hlutverki en það er ég ekki búin að gera seinustu ár,eiginlega bara aldrei!!

Mig langar samt mest að allir sem mér þykir vænt um viti það, ég get bara oft ekki sagt það!

Hafiði pælt í því hvað eitt atvik getur breytt miklu, ein setning, ein hugsun, eitt augnablik...!
Og hafiði  pælt í því hvað orðið EF er stórt en samt svo lítið...!
Ég held að allir eigi eftir og hafi einhvern tíma hugsað EF ég hefði ekki gert þetta og EF ég hefði ekki gert hitt,þá hefði allt farið miklu betur!
Ég er einmitt ein af þeim sem hugsar mikið um fortíðna og vellti mér endalaust uppúr henni kanski þess vegna er ég svona í dag, held að það hafi enginn gott af því að hugsa of mikið...
Hausinn á mér um þessar mundir er að springa!!!!
Mig langar svo mikið að geta spólað til baka að svo mörgum atvikum á ævinni minni og gert þau öðruvísi!!
Og ekki bara til að gera mitt líf betra heldur líka þeirra sem ég hef sært,farið illa með og verið tík við...
Skrítið þegar maður lítur til baka hvað er mikið sem maður er ekki stolltur af!

Úff þetta er upplífgandi blogg!!! ég bara veit ekki afhverju ég er í þessu skapi, kanski því ég er að reyna að hætta að drekka 3 helgin að verða búin og ég er orðin nett pirruð, mér var samt sagt að þessi blessaða löngun færi að hverfa, ég held samt ekki kanski vegna þess að ég drekk til að gleyma og ég held að mig langi til að drekka þangað til ég er búin að vinna mig útúr öllu sem ég þarf að takast á við.... BÖMMER!!!!:$

En jæja farin að fá mér malt eða e-ð;)

Kærlig hilsen
-Kata

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:41:18 / Bryndís

Nýtt slúður

þá er komið smá slúður af vistini reindar ekkert mikið ég er fljót að gleyma en það er eitthvað annas er bara ágætt hérna mer er ekkert farið að leiðast rosalega mikið  eins og er en það kemur öruglega en ég bið allavega spennt eftir helgunum en ef einhver bíður sinn fram í driver á busaballið endilega láta þa vita :haha: en ég ætla að fara gera eitthvað af mer :klikk: bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 20:39:57 / Kata

New bloggídiblogg;)

ég ákvað að henda inn einni færslu hérna þar sem það hefur ekki verið gert lengi lengi....
Ég hef afsökun þar sem ég kemst voðalega sjaldan í tölvu:)

Ég hef samt í rauninni ekkert að blogga um skrítið....
Mér gengur samt rosalega vel og er búin að koma mér vel fyrir í sætaherberginu mínu í Álfabyggð:)

SVO ER ERNA AÐ KOMA EFTIR NOKKRA daga Mmmm mér hlakkar svo til að hitta hana:*
Gosh það verður sko tekinn slúður rúntur,brynjuís fengið sér ostabrauðstangir á greifanum og skellt sér í kjarna;) eins gott að þú verðir svöng og ekki þreytt þegar þú kemur Erna mín;)

Ég sakna síðan Bryndísar og Arnórs ofsa mikið:( og Nínu minnar sem er stungin af til Norge í heilt helvítið ár afsakið orðbragðið;)

En ég nenni ekki meir reyni að blogga e-ð svaka á næstunni:)

Katmandú;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dufus-

""

""

""

RSS tengill